Nánar
Morgunrútína í tveimur einföldum skrefum
1. Hreinsa og róa – EYZ Clean
Dauðhreinsaðir blautklútar fyrir milda daglega hreinsun augnloka og augnhára. Klútarnir fjarlægja óhreinindi og augnseyti og innihalda augnfró (Euphrasia officinalis), kamillu og hýalúrónsýru.
Kamilla hefur róandi áhrif og hreinsar mildilega, en hýalúrónsýra gefur raka og hjálpar til við að draga úr þurrki, ertingu og þrota.
2. Gefa raka og vernda – EYZ Protect
Rakagefandi augndropar fyrir þurr og viðkvæm augu. EYZ Protect hefur þríþætta virkni sem verndar, gefur raka og dregur úr óþægindum vegna þurra og ertra augna.
EYZ Protect inniheldur einkaleyfisvarða forðablöndu, SUSTAINED RELEASE ECOTOIN, sem losar virku efnin smám saman yfir daginn. Það hjálpar til við að viðhalda raka og stöðugleika tárafilmunnar og veitir langvarandi vernd. Einn dropi að morgni getur dugað í allt að 12 klukkustundir.
Dropana má nota með augnlinsum og þeir eru án rotvarnarefna og fosfata.
Af hverju Morgunpakkinn?
- Mild hreinsun og umhirða í tveimur einföldum skrefum
- Róandi kamilla og rakagefandi hýalúrónsýra í EYZ Clean
- Þríþætt virkni EYZ Protect – verndar, gefur raka og dregur úr óþægindum
- Langvarandi virkni – einn dropi getur dugað í allt að 12 klukkustundir
- Hentar þurrum og viðkvæmum augum
- Hentar linsunotendum
- Án rotvarnarefna og fosfata
- 10% afsláttur þegar vörurnar eru keyptar saman




