Afhending og sendingarmátar


Afhending

Við komum vörunum á þann sendingaraðila sem valinn er næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest. Athugið að sendingartími getur lengst á álagstímum hjá sendingaraðilum þ.e. Dropp og Póstinum. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Pantanir eru sendar með Dropp eða Póstinum og gilda afhendingar, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Komi upp tjón eða vandamál við afhendingu eru viðskiptavinir hvattir til að hafa samband við okkur svo hægt sé að finna lausn á málinu.

Sendingarmátar

Við sendum með Dropp eða Póstinum. Kaupandi velur sendingarmáta við lok pöntunar og þar reiknast verð sendingar.

Sending með bréfapósti á aðeins við um augnplástra og Moskinto. Athugið að bréfapóstur er sendur með Póstinum, er ekki rekjanlegur og er skilað inn um lúgu / í póstkassa hjá kaupanda. Bréf eru borðin út tvisvar sinnum í viku alls staðar á landinu og gefur Pósturinn sér 3-7 virka daga til að koma bréfi til skila.

Aðrar sendingar með Póstinum s.s. sótt í pósthús, póstbox eða heimsending eru rekjanlegar. Hægt er að athuga stöðu sendingar á Mínum síðum Póstsins.

Ef Dropp er valið er hægt er að athuga stöðu sendingar á Mínum síðum Dropp.

Athugið að ekki er hægt að rekja sendingar sem sendar eru með bréfapósti.

Vinsamlegast athugið að það er á ábyrgð kaupanda, og því mikilvægt, að upplýsingar frá kaupanda séu réttar og að nafnið sem gefið er upp á pöntuninni sé merkt á póstkassa/lúgu. Einnig skiptir miklu máli að símanúmer, götuheiti, húsnúmer og póstnúmer sé rétt. Jafnframt er mikilvægt að skrá hæð og/eða íbúðanúmer ef við á.