Skilmálar


Vefverslun Aggva er rekin af Heildversluninni Aggva ehf., kt. 620405-0860.

Einstaklingar geta pantað vörur beint í gegnum vefverslun Aggva. Fyrirtæki og stofnanir sem óska eftir reikningsviðskiptum eða stærri pöntunum geta haft samband á aggva@aggva.is.

Fyrirspurnum um vörur, pantanir og þjónustu má beina á aggva@aggva.is.

ATH. Vefverslun Aggva er eingöngu netverslun og ekki með aðstöðu til að taka á móti viðskiptavinum.

Pantanir
Heildverslunin Aggva sendir staðfestingu í tölvupósti þegar pöntun hefur borist. Kvittun fyrir kaupum er send í tölvupósti þegar pöntun hefur verið staðfest.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Verð á vörum í vefverslun Aggva er alltaf staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um myndarugl og prentvillur. Heildverslunin Aggva áskilur sér rétt til að hætta við pöntun ef um augljósa verð- eða innsláttarvillu er að ræða. Öll verð í vefversluninni og allir reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með kreditkorti eða debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga síðu Teya. Heildverslunin Aggva ehf. geymir aldrei upplýsingar um greiðslukort kaupanda.

Afhending
Við komum vörunum á þann sendingaraðila sem valinn er næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest. Athugið að sendingartími getur lengst á álagstímum hjá sendingaraðilum. Sé vara ekki til á lager verður haft samband við kaupanda og upplýst um áætlaðan afhendingartíma.

Pantanir eru sendar með Dropp eða Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar viðkomandi sendingaraðila um afhendingu vörunnar. Komi upp tjón eða vandamál við afhendingu eru viðskiptavinir hvattir til að hafa samband við okkur svo hægt sé að finna viðeigandi lausn.

Afhendingarmátar
Afhendingarmáti er valinn við lok pöntunar. Nánari upplýsingar um afhendingarmáta má finna á síðunni „Afhending og sendingar“.

Skil og endurgreiðslur
Kaupandi hefur rétt til að skila ónotaðri vöru í upprunalegu ástandi innan 14 daga frá móttöku, nema um sé að ræða vörur sem ekki er unnt að taka aftur til sölu vegna hreinlætis-, heilbrigðis- eða öryggissjónarmiða.

Af hreinlætis- og öryggisástæðum eru skil ekki samþykkt á vörum sem hafa verið opnaðar, notaðar eða þar sem ekki er hægt að staðfesta að varan sé í óbreyttu ástandi.

Hafi kaupandi fengið ranga eða gallaða vöru skal hafa samband við Heildverslunina Aggva á aggva@aggva.is svo unnt sé að finna viðeigandi lausn.

Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng við afhendingu skal kaupandi hafa samband við Aggva eins fljótt og auðið er á netfangið aggva@aggva.is. Leitast verður við að leysa málið eins fljótt og kostur er með skiptum, endursendingu eða endurgreiðslu eftir því sem við á.

Fyrirvari um vörulýsingar
Leitast er við að upplýsingar og myndir af vörum séu eins nákvæmar og kostur er. Framleiðendur geta þó breytt umbúðum, útliti eða eiginleikum vara án fyrirvara og áskilur Heildverslunin Aggva sér rétt til að uppfæra upplýsingar eftir því sem tilefni gefst til.

Persónuvernd
Persónuupplýsingar sem safnað er við afgreiðslu pantana eru eingöngu notaðar til aðafgreiða viðskipti og veita þjónustu. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt vegna afgreiðslu pöntunar eða samkvæmt lagaskyldu. Vefverslunin kann jafnframt að nota vafrakökur (cookies) til að bæta notendaupplifun og greina notkun á vefnum.

Ágreiningur
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Takist það ekki má bera málið undir íslenska dómstóla.