EYZ Clean

2606 kr.

EYZ Clean eru dauðhreinsaðir blautklútar sem eru fullkomnir til daglegrar hreinsunar á augum, augnhárum og augnlokum. Þeir innihalda nærandi og rakagefandi efni sem veita milda og nærandi hreinsun. Einnig tilvaldir fyrir/eftir augnaðgerð.

Má nota með augnlinsum.

Án rotvarnarefna og fosfata.

Nánar

Augnklútarnir (17×13 cm) eru í pakka sem auðvelt er að opna. Af þeim er daufur keimur af kamillu. Notaðir til að fjarlægja seyti, önnur óhreinindi og til undirbúnings fyrir/eftir augnaðgerð. Þeir eru nægilega stórir til að skipta upp einum klút í tvo hluta til að nota á sitt hvort augað.

Þeir innihalda meðal annars kamillu og augnfró, sem henta vel í milda umhirðu, og hýalúrónsýru sem gefur raka.

Hægt er að hita eða kæla klútana meðan þeir eru enn í pakkningunni.

Hentar öllum aldri. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna og gott að nota daglega.

EYZ Clean eru jafnframt skráðir sem lækningatæki – ekki snyrtivara.

Má nota með augnlinsum.
Án skaðlegra rotvarnarefna og fosfata.

Fæst einnig í apótekum.