Vefverslun


Augnplástrar

Plástrarnir eru úr þunnu efni með lími sem er án latex og ofnæmis viðbrögð eru sjaldgæf. Lepparnir er án gúmmí kvoðu og glúteins. Plástrarnir eru með svörtu innleggi sem lokar fyrir sýn og ljós. Plásturinn losnar ekki af í raka eða vatni. Í hverjum pakka eru 10 plástrar.

Plástrarnir eru sendir með bréfapósti en einnig er hægt að velja að sækja á afhentingarstaði Dropp. Fyrir þá sem eru á Höfuðborgarsvæðinu er einnig hægt að nálgast plástranna hjá okkur.

Augnplástrarnir fást í tveimur stærðum. Þeir minni henta börnum upp að tveggja ára aldri og þeir stærri fyrir þriggja ára og eldri.

Moskinto plástrar

Undraplásturinn er kominn!

Moskinto plástrarnir eru tilvaldir m.a. á skordýrabit og minnka kláða á 10-20 mínútum. Hver plástur virkar sem hlíf á bitið og andar vel. Plástrarnir eru án allra aukaefna og eru latexlausir. Þeir eru frábær náttúruvæn lausn.

Hver pakki inniheldur 24 plástra og eru í þægilegri stærð svo þeir eru fullkomnir í ferðalagið.

Plástrarnir eru sendir með bréfapósti en einnig er hægt að velja að sækja á afhentingarstaði Dropp. Fyrir þá sem eru á Höfuðborgarsvæðinu er einnig hægt að nálgast plástranna hjá okkur.

Sundgleraugu með styrk

Sjáðu í sundi!

Sundgleraugu með styrk. Fást bæði í + og –

Sundgleraugun koma í tveimur stærðum. Barnagleraugun henta börnum upp að ca 7 ára. Hin henta stálpaðari börnum sem og fullorðnum.

Hægt er að fá sitthvorn styrkinn fyrir hvort auga ef þarf. Sendið upplýsingar um lit og styrkleika á netfang okkar aggva@aggva.is.

Upplýsingar um sundgleraugun:

  • Linsurnar eru gerðar úr polycarbonate og umgjörðin úr silikoni.
  • Linsurnar veita 100% UV-vörn og eru húðaðar móðuvörn (anti-fog coating) og því má ekki nota á þau klút úr microfibre.
  • Þola saltvatn og valda sjaldnast ofnæmi.