Activon Manuka Honey Barrier Cream

6.764 kr.

Inniheldur 25% af Manuka hunangi og 99% innihaldsefna eru náttúruleg.

Kremið er áhrifarík vörn til að koma í veg fyrir rakatengdar húðskemmdir (MASD). Það gefur einnig raka og hjálpar til að draga úr eymslum og pirringi í húð. Róar húðina, þornar fljótt og myndar þunna himnu sem verndar gegn líkamsvökvum, svo sem svita, þvagi og hægðum.

Kremið er ætlað til notkunar á viðkvæmum húðsvæðum þar sem raki getur valdið ertingi og skemmdum á húð. Má einnig nota í kringum stóma.

Kremið er borið á í litlu magni á hreina húð og dugar lengi eða í allt að 24 tíma. Kremið þornar fljótt og skilur eftir sig gegnsæja himnu sem verndar húðina gegn raka.

Category:

Description

Manuka hunang er sannkallað undraefni. Hunangið kemur frá býflugum í Nýja Sjálandi þar sem þær frjóvga svokölluð Te tré (tea tree). Hunangið er bakteríudrepandi og dregur úr bólgum í kringum sár.

Hvaða ávinning hefur Manuka hunang í meðferð sára?

  • Sótthreinsandi og bakteríudrepandi.
  • Lágt pH-gildi (3.2-4.5) skapar umhverfi þar sem bakteríur þrífast ekki.
  • Osmótísk áhrif hreinsa skemmdan og dauðan vef.
  • Viðheldur raka umhverfis sárið.