Your cart is currently empty!
MediPearl augnmaski
Augnmaskinn lagar sig að andlitinu og inniheldur litlar mjúkar perlur af
vatni, glýseróli og natríumpólýakrýlati. Hann er CE-merkt lækningatæki
og er algjörlega laus við BPA, þalöt og latex.
Notkun: Leggðu augnmaskann yfir lokuð augun í að hámarki 20
mínútur. Ef þú þarft að nota hann aftur skaltu bíða í tuttugu mínútur fyrir
næstu meðferð. Maskinn er þrifinn með mildri sápu og má endurnýta
hann margoft.
Hitameðferð/einkenni: MGD, hvarmabólga, augnþurrkur, kvef og
kinnholuvandamál.
Hitið augnmaskann þar til hann nær þægilegum hita. Mundu að athuga
alltaf hitastig fyrir notkun. Lestu leiðbeiningarnar á umbúðunum.
Ráðlagður hitunartími fer eftir afli örbylgjuofnsins:
700 W ~ 15 sek 1000 W ~ 12 sek
1250 W ~ 10 sek
Ekki má hita maskann í ofni. Upphitun í vatni er í lagi svo framarlega sem
hitastig vatnsins fari ekki yfir 48 gráður. Athugaðu alltaf hitastig maskans
fyrir notkun. Ofhitnun getur valdið því að hann skemmist.
Kælimeðferð/einkenni: Ofnæmi, höfuðverkur, rauð augu, augnþreyta
og bólgin augu. Frystið í a.m.k. tvær klukkustundir fyrir notkun.