Description
Sérfræðingar mæla með skref-fyrir-skref meðferð vegna þurra augna: hita – hreinsa – smyrja.
MediPearl augnmaskinn er CE-merkt lækningatæki sem hitaður er í örbylgjuofni samkvæmt leiðbeiningum eða kældur í frysti í að minnsta kosti tvær klukkustundir fyrir notkun. Hann lagar sig að andlitinu og er notaður yfir lokuð augnlok í mest 20 mínútur í senn. Maskann má þvo með mildri sápu og nota margoft.
Heit meðferð fyrir þurr augu: Með því að hita augun með maskanum og nudda létt eftir meðferð má örva seyti í meibomskum kirtlum sem hjálpar til við að draga úr einkennum MGD, hvarmabólgu og augnþurrks.
Köld meðferð: Veitir kælingu og létti við bólgin, þreytt, ofnæmis- eða rauð augu, höfuðverk eða eftir augn- og augnlokaaðgerðir.






